Eldra efni : Yfirlit greina
Enn unnið að uppsetningu
Rúmri viku eftir að búnaði í gagnaver Verne Global var skipað upp í Helguvík er enn unnið að því að koma honum fyrir í gagnaverinu á Ásbrú. Gagnaverið tekur til starfa í byrjun næsta árs. Víkurfréttir í Reykjanesbæ fylgjast að vanda vel með gangi mála, eins og fjölmiðillinn hefur gert frá upphafi. Í gær var birt mynd á fréttavef blaðsins sem sýnir enn einn flutningabílinn flytja aðföng í gagnaverið.