Frá íslenskri heildsölu til alþjóðlegs lyfjarisa
Helstu áfangar á leið Actavis (Pharmaco) inn á alþjóðamarkað samheitalyfja:
1956 Pharmaco stofnað
1972 Lyfjaframleiðsla hefst á Íslandi
1999 Pharmaco fjárfestir ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni í Balkanpharma í Búlgaríu.
Þar rugla Björgólfur Thor og Pharmaco reitum saman í fyrsta sinn.
2000 Pharmaco og Balkanpharma sameinast undir merkjum Pharmaco og eigendur Balkanpharma fá
greitt í hlutabréfum í Pharmaco.
2000 Björgólfur Thor Björgólfsson verður formaður stjórnar
2002 Ný og afkastamikil lyfjaverksmiðja tekin í notkun í Dupnitza í Búlgaríu.
2002 Pharmaco selur þann hluta íslensku starfseminnar sem annaðist innflutning á lyfjum og dreifingu
innanlands.
2002 Pharmaco kaupir íslenska lyfjaframleiðslufyrirtækið Delta og sameinast félögin í september.
2004 Félaginu gefið nafnið Actavis og jafnframt er kynnt nýtt vörumerki.
2004 Aðgangur tryggður að lyfjamarkaðinum í Tyrklandi með yfirtöku á þarlenda fyrirtækinu Fako.
2005 Aðgangur opnast að lyfjamarkaði í Norður-Ameríku með yfirtökum á lyfjafyrirtækjunum Amide og
Alpharma.
2007 Félög undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar taka yfir allt hlutafé í Actavis. Félagið afskrifað í
Kauphöll Íslands.
2012 Watson Pharmaceuticals kaupir Actavis. Sameinað fyrirtæki, undir nafni Actavis, er þriðja stærsta
samheitalyfjafyrirtæki heims.